Kaffifrelsi

Vilt þú vera vildarvinur Te & Kaffi?

Tryggðu þér þá kaffi frelsi og njóttu bestu afsláttarkjara á kaffidrykkjum og meðlæti sem völ er á.

Kaffi frelsi er fyrirframgreitt kaffikort sem gildir á öllum kaffihúsum og kaffibörum Te & Kaffi. Þú einfaldlega biður kaffibarþjón Te & kaffi um kaffi frelsi og lætur hann fylla út kort miðað við þínar drykkjarþarfir. Hægt er að biðja um einfalt kaffi frelsi en líka flóknari drykki, hvort sem það er tvöfaldur karamellulatte, te eða frappó. Þú fyrirframgreiðir kaffi frelsið og myndar þá inneign sem samsvarar 10 kaffidrykkjum. Þú framvísar svo kortinu í hvert skipti sem þú færð þér kaffi og þarft ekki að hafa áhyggjur af greiðslu enda búið að greiða fyrir kortið.

Með því að fyrirframgreiða kaffi frelsið öðlast þú rétt á að njóta bestu afsláttarkjara Te & kaffi. Þú

færð 20% afslátt af kaffidrykkjum sem þýðir í raun að með 10 bolla kaffi frelsi greiðir þú einungis

fyrir 8 og færð 2 bolla ókeypis! En jafnframt færðu 10% afslátt af öllu meðlæti; gosi, söfum, samlokum, Panini, kökusneiðum og múffum.

Fáðu þér kaffi frelsi og njóttu besta bollans sem völ er á!

Fjöldi

Vöru bætt í körfu. Skoða körfu og panta.