Rauðrunnate Bush Fire
Rauðrunnateið er einstök vara frá einstöku svæði. Höfðahérað í Suður-Afríku er heimili ógrynnis plöntutegunda sem þrífast einungis við það sérstaka loftslag sem einkennir Cederberg-fjallasvæðið. Það er eingöngu hér sem Rooibos eða rauðrunninn, vex í sínu náttúrulega umhverfi, á svæði þar sem veturinn er regntími og jarðvegurinn er grófur og sendinn. Rauðrunnate, sem er koffeinlaust, bragðast sem besta te og er ódýr og góður heilsudrykkur. Mjög er mælt með rauðrunnatei við svefnleysi og fyrir þá sem hafa viðkvæman maga eða taugar. Það inniheldur engin basísk efni og tanníninnihald þess er aðeins 1%. Sérstaklega er það talið gott við ýmiss konar vöðvaverkjum sé það drukkið að jafnaði. Einnig er það talið gott við ýmiskonar exemi.
Rauðrunnate Bush Fire með náttúrulegum bragðefnum og körfublómum, sem gefa teinu fallegan rauðan lit. Bragðið af sólríkum sítrusávöxtum og ilmur af nýkreistum appelsínum gefa suðrænan blæ, mjög ferskt og líflegt te.