Mánudagur | 08:00 - 18:00 |
Þriðjudagur | 08:00 - 18:00 |
Miðvikudagur | 08:00- 18:00 |
Fimmtudagur | 08:00 - 18:00 |
Föstudagur | 08:00 - 18:00 |
Laugardagur | 10:00 - 17:00 |
Sunnudagur | 10:00 - 17:00 |
Verslunarrekstur Te & Kaffi við Laugaveginn nær allt aftur til ársins 1987 þegar við opnuðum kaffihús og sérverslun í bakhúsi við Laugaveg 24. Í dag rekum við kaffihús við Laugaveg 27 sem var opnað 1997. Frá þeim tíma hefur búðin þróast mikið og fór hún í miklar endurbætur árið 2006. Frábær staður til að skoða allt það helsta sem te og kaffiheimurinn hefur upp á að bjóða ásamt því að smakka á úrvals te- og kaffidrykkjum. Mikið úrval af kaffi, tei og gjafavöru frá merkjum eins og Kinto, Chemex, Beehouse og Keep Cup. Á kaffihúsinu er nóg pláss til að setjast niður og njóta, horfa á mannlífið fyrir utan gluggann og fá sér góðan kaffibolla.