Dominican Republic Barahona AA
Bolli sem einkennist frekar af glæsileika og jafnvægi en ýktum bragðtónum. Makadamía, mjólkursúkkulaði og pera.
Kenya Karamundi AA
Fylltur bolli með bjartri og safaríkri sýru, miklum ávexti og sætu. Púðursykur, svart te og plómur.
Nicaragua Pacamara Gigante
Pacamara, eitt sérstæðasta og eftirsóttasta kaffiyrki heims, þekkt fyrir óvenjustórar baunir og mikinn karakter í bolla.
Colombia Finca Las Flores Clementina
Tabi yrki frá Huila í Kólumbíu. Fjölþrepa anaeróbísk gerjun sem skilar hindberjum, blóðappelsínu og hunangi með bjartri sýru og langri sætri ávaxtalyktun.
Uganda ROKA Garden
Natural unnið kaffi frá Rwenzori-fjöllum í Úganda. Nyasaland, SL14 og SL28 yrki sem skila dökku súkkulaði, jarðhnetum og karamellu með mjúkri og jafnvægri áferð.
Colombia Finca Villa Pastora Exótico
Red Bourbon frá Huila í Kólumbíu. Natural vinnsla með stýrðri anaeróbískri gerjun sem skilar kakói, dökku súkkulaði og hunangssætleika í kremkenndum og jafnvægum bolla.
Indonesia Sulawesi Toraja Kalossi GR.1
Toraja Kalossi frá Sulawesi í Indónesíu. Wet-hulled vinnsla skilar fyllingarmiklum og kremkenndum bolla með greipaldini, rósaberjum og léttum jurtakeim.
Rwanda Gasharu Coffee
Red Bourbon frá Nyamasheke í Rúanda. Anaeróbísk gerjun sem skilar safaríkum rauðum berjum, steinávöxtum og blómlegum tónum með kremkenndri áferð og hreinni sýru. 87.75 SCA.
Espresso 101
Espresso 101 er sú blanda sem við notum á kaffihúsunum okkar og hefur reynst einstaklega vel bæði sem espresso og sem grunnur að helstu mjólkurdrykkjum eins og cappuccino og latte. Hún er þróuð til að vera aðgengileg, stöðug og auðveld í notkun. Blandan skilar fyllingu og mýkt í bolla, með klassískum bragðtónum af dökku súkkulaði, ristuðum hnetum og mildri karamellusætu. Sýran er lág og mjúk, sem gefur espressóinu þægilega uppbyggingu og hreint og langt eftirbragð.
Guatemala – Flor del Rosario
Þetta kaffi kemur frá Flor del Rosario býlinu í Alta Verapaz í Gvatemala, þar sem Horst Spitzke hefur byggt upp eina áhugaverðustu kaffiframleiðslu svæðisins. Upphaflega ætlaði hann að rækta nautgripi á landinu, en bratt landslagið leiddi hann inn á aðra braut – kaffirækt, sem hann hefur helgað sig síðan 1988 með mikilli nákvæmni og ástríðu.
Tilboðspakki - Te og matcha sett
19.995 Kr.
Bancha Grænt
Lífrænt ræktað japanskt te. Stór laufblöð, tekin neðarlega á teplöntunni breiða fallega úr sér þegar hellt er upp á teið. Bragðið er mjúkt með grösugum keim.
Bora bora
Sæt og bragðmikil blanda með framandi ávöxtum og blómum eyjunnar.
Ceylon Highgrown
Vandlega valin telauf frá eyjunni Sri Lanka. Meðalsterkt með örlitlum maltkeim, mikill ilmur, góð fylling og kröftugt bragð.
Darjeeling Himalaya
Vandlega valið og klassískt haustuppskeru te frá Darjeeling héraði á Indlandi. Meðalstór og regluleg dökk laufblöð með nokkrum toppum. Brons litað te í bolla með bragðmiklu blóm- og kryddkeim.
Earl Grey Blóðberg
Þetta klassíska og vinsæla te er bragðbætt með ilmandi náttúrulegum sítrusbragðefnum úr bergamot-ávextinum og íslenskum blóðbergum.
Earl Grey Classic
Þetta klassíska og vinsæla te er bragðbætt með ilmandi náttúrulegum sítrusbragðefnum úr bergamot-ávextinum.
Earl Grey Superior
Hið blómkennda bragð frá Darjeeling héraði í bland við vinsæla bergamot. Fágað og einstakt bragð.
English Breakfast
Fínmalað svart te frá Assam héraði á Indlandi og eyjunni Súmatru. Bragðmikið, dökkt og með maltkeim.
Heilsubót
Ljúf jurtablanda með sætum ávaxtakeim. Mild kamillan passar vel við frískandi sítróngras. Koffínlaust.
Hreint Rauðrunnate
Lífrænt og vandað rauðrunnate frá Suður-Afríku. Rauðbrúnt á lit með mjúku, sætu og ilmríku bragði. Koffínlaust.
Hugarró
Krydduð og sætkennd ayurvedísk jurtablanda með örlitlum lakkrískeim. Endurnærandi fyrir líkama og sál. Koffínlaust.
Jarðaber & Hindber
Frábær avaxtablanda. Hindber og jarðaber passa einstaklega vel saman. Berin eru frostþurrkuð halda því vel bragðgæðunum.
Kína Yunnan
Í Yunnan héraði, í Suðvestur-Kína hefur te verið ræktað í 1700 ár. Dökk laufblöðin með bronslituðum toppum gefa miðlungssterkt bragð með krydduðum keim og sætum jarðartónum.
Mangóte
Suðræn, mild og lettkrydduð blanda frá Kína og Ceylon bragðbætt með ljúffengum, sætum mangóteningum og sólblómum.
Masala Chai
Klassískt svart te, blandað með indverskum kryddum eins og anísfræjum, kanil og engifer.
Matcha Ceremonial 30gr Organic
Mjög vandað, einstaklega bragðgott og stenst ströngustu alþjóðlegu gæðastaðla. Framleidd í Japan af fyrirtæki með yfir 30 ára reynslu. Hefðbundin ræktunaraðferð þar sem laufblöð eru skuggavaxin og steinmöluð, sem varðveitir næringarefni, lit og bragð. Inniheldur náttúrulegt koffín í jafnvægi við L-Theanine.
Piparminta
Hrein og frískandi piparmintan er einstaklega frískandi og orkugefandi jurt.
Rauðrunnate m/ Blóðappelsínu
Bragðið af sólríkum sítrusávöxtum og ilmur af nýkreistum appelsínum gefa þessu tei suðrænan blæ. Bragðbætt með körfublómum og blóðappelsínum. Koffínlaust.
Sencha Mangó
Suðrænn ilmur stígur upp þegar pokinn er opnaður. Mjúkt Sencha-te, fagurlega skreytt björtum sólblómum sem hæfa sætu mangóbragðinu einstaklega vel.
Sencha Sítróna
Grænt Sencha te, blandað sítrónu sem passar vel við hið mjúka græna te. Gefur sætt sítrónubragð, gott bæði heitt og kalt.
Skógarberjate
Einstakt bragðið leiðir hugann að þroskuðum skógarberjum á heitum sumardegi. Frábær blanda sem inniheldur brómber, hindber, ylliber og hindberjalauf.
Stokkrós Hibiscus
Öflug læknis- og heilsujurt. Bragðið minnir á trönuber og er frískandi og kælandi.
Yunnan Hvítt
Stór ljósgræn telaufin með fjölda silfurlitaðra toppa gefa mjúkt og milt bragð með blómkenndum keim.
Matcha Bambuspískur
Matcha sett - Skál, pískur og skeið
Fallegt lífrænt ceremonial matcha te sett sem inniheldur handgerða keramik skál, bambuspísk og bambuskeið. Allir hlutirnir eru hannaðir til að endurspegla japanskar tehefðir. Fullkomið fyrir bæði byrjendur og teaðdáendur sem vilja njóta lífræns ceremonial matcha á ekta og fallegan hátt.
Keep Cup Commuter Chocolate 340 ml
Keep Cup stál ferðamál sem heldur heitu eða köldu í langan tíma. 340 ml.
Keep Cup Commuter Nitro Pashmak 340 ml
Keep Cup Commuter Nitro Pine 340 ml
Keep Cup Stál 340 ml.
KeepCup Cold Cup 340 ml
KeepCup Cold Cup ferðamál með loki og röri sem er tilvalið fyrir ískaffi.
KeepCup Cold Cup 454ml
KeepCup plast 340ml Doppio
Svart klassískt ferðamál frá Keep Cup. Tilvalið í bílinn, fjallgönguna og ferðalagið. Málið er úr BPA fríu plasti.
Topl kaffimál 12oz
Fallegt kaffimál hannað fyrir fólk á ferðinni. Úr endingargóðu 90% endurunnu ryðfríu stáli með tvöfaldri einangrun. Gert til að endast um ókomin ár. Með gegnsæju loki svo þú njótir í botn. Lokin eru læsanleg, gerð úr 50% endurunnu BPA fríu plasti.
Topl kaffimál 8oz
Kinto ferðamál 500ml
Vandað og stílhreint ferðamál frá japanska fyrirtækinu Kinto. Heldur mjög vel bæði heitu og köldu í 6 klukkustundir. BPA frítt. Forðist að setja í örbylgjuofn og uppþvottavél.
Copy Kinto Vatnsflaska 950ml
Létt og þægileg vatnsflaska úr plasti.
Kinto Vatnsflaska 950ml
Victoria Arduino E1 Prima
Victoria Arduino E1 Prima er framúrskarandi espressóvél sem sameinar framúrstefnulega hönnun og topp tækni. Hún býður upp á einstaklega nákvæma hitastýringu, hraða upphitun og fulla stjórn á þrýsting sem skilar fullkomnum espresso og silkimjúkri mjólkurfroðu í hverjum bolla.
Nuova Simonelli Oscar
Nuova Simonelli Oscar er öflug og nett espressóvél sem færir kaffihúsagæði heim í eldhús. Hún er með stöðugan gufukraft og hitastýringu sem skilar silkimjúkri mjólkurfroðu og fullkomnu espresso í hvert skipti. Frábær kostur fyrir þá sem vilja taka kaffigerðina á næsta stig.
Nuova Simonelli Musica
Nuova Simonelli Musica er kraftmikil espressóvél með fallega og netta hönnun sem hentar bæði heimilum og minni vinnustöðum. Hún býður upp á nákvæma hitastýringu, stöðugan þrýsting og öflugan gufukraft sem tryggir vandaðab espresso og fullkomna mjólkurfroðu í hvert skipti.
Chemex 6 bolla kanna m/viðarhaldi
Chemex 6 bolla kaffikanna með viðarhaldi. Kaffið í Chemex verður létt og tært og mælum við með að hella upp á kaffi sem hefur ekki mikla fyllingu fyrir. Þvegið kaffi frá löndum í Suður-Ameríku á borð við Kosta Ríka og Kólumbíu, eða Afríkulöndum á borð við Eþíópíu og Keníu, nýtur sín stórkostlega í Chemex.
Hario V60 Range Server 600 ml Clear
Hario V60 Range kannan er fullkomlega hönnuð fyrir hæga uppáhellingu, hvort sem það er heima eða á vinnustaðnum. Framleitt úr varanlegu hitaþolnu japönsku gleri. Glerlokið er húðað með kísli sem gerir það að verkum að vatnið helst heitt í langan tíma. Má setja í örbylgjuofn. 600 ml
Nuova Simonelli Duo
Nuova Simonelli Duo er öflug og nákvæm kaffikvörn sem skilar stöðugri og jafnri mölun fyrir espresso af hæsta gæðaflokki. Með vandaðri hönnun, nákvæmri skömmtun og áreiðanlegri frammistöðu er hún frábær kostur fyrir þá sem vilja fulla stjórn á extraksjóninni og betri niðurstöðu í hverjum bolla.
Timemore S3 handkvörn
Timemore S3 er hágæða handkvörn sem sameinar nákvæmni, endingargæði og stílhreina hönnun. Fullkomin fyrir mölun frá hægri uppáhellingu til espresso, hvort sem er heima eða á ferðinni.
Timemore Bricks
Timemore Bricks er öflug rafmagnskvörn sem sameinar nákvæmni og einfaldleika í notkun. Hún býður upp á stöðuga og jafna mölun með breiðu stillisviði. Fullkomin fyrir allt frá espresso til filter. Stílhrein hönnun og áreiðanleg frammistaða gera hana að frábærum kosti fyrir bæði heimili og minni vinnustaði.
Fellow ODE Gen 2
Fellow Ode Gen 2 er hágæða rafmagnskvörn sem er sérstaklega hönnuð fyrir filterkaffi. Hún skilar einstaklega jafnri mölun með nákvæmri stillingu, lágmarkar fíngerð korn og dregur fram hreina og skýra bragðtóna í bollanum. Stílhrein hönnun og hljóðlát vinnsla gera hana að fullkomnu vali fyrir kröfuharða kaffiunnendur.
Hario V60 Rafmagnskvörn
Vönduð rafmagnskvörn frá Hario. Kvörnin hefur 39 mölunarstillingar, allt frá grófri stillingu fyrir pressukönnu yfir í fína mölun fyrir espressóvélar.
Hario Filter 02
Filterar fyrir hæga uppáhellingu. Sérstaklega hannaðir til að passa í trektar nr 02. 100 stk í pakka.
Hario trekt 02 Plast
Hario V60 glær plasttrekt. Skeið fylgir með. Stærð 02
Chemex Filterar 3 bolla
Pappírsfilterar fyrir 3 bolla Chemex kaffikönnu.
Chemex Filterar
Ferkantaður filter fyrir Chemex kaffikönnu. 100 stykki í kassa
Hario vigt
Hágæða vigt frá japanska merkinu Hario. Ómissandi þegar hella skal upp á hæga uppáhellingu.
Kinto Trekt
Kaffitrekt frá Kinto úr postulíni. 4 bolla.
Acaia Umbra
Nýstárleg vog sem opnar nýja möguleika á kaffibarnum. Hún sameinar faglega mælitækni Acaia í minimalískri, skjálausri hönnun og miðlar mæligögnum í rauntíma á milli Acaia tækja með Magic Relay. Hún er úr anodíseruðu áli fyrir stöðugleika og áreiðanleika, með orkusparandi hönnun sem lengir rafhlöðuendingu. Umbra virkar einnig sjálfstætt í gegnum snjallsímaforrit og færir þér meiri sveigjanleika og skilvirkni í kaffigerð.
Acaia Pearl
Kynntu þér endurhannaða Acaia Pearl. Hún heldur öllum þeim eiginleikum sem notendur elska, en nú með enn betur útfærðri hönnun sem gerir kaffigerð að upplifun þar sem nákvæmni, ánægja og einfaldleiki fara saman. Taktu uppáhellinguna á næsta stig með rauntímaflæðimælingu og fleiri stillingum – eða hafðu þetta einfalt og fylgstu eingöngu með þyngd og tíma á meðan þú bruggar. Valið er þitt og möguleikarnir eru endalausir.
Acaia Lunar
Endurhönnuð Acaia Lunar er hröð, nákvæm og afar áreiðanleg vog, sérstaklega hönnuð fyrir espresso. Hún er úr vatnsþolnu anodíseruðu áli og byggir á háþróaðri mælitækni Acaia, sem gerir hana fullkomna fyrir kaffihús og heimili. Með sérsniðnum stillingum, sjálfvirkum bruggham og rauntíma flæðivísun færðu fulla stjórn á uppáhellingunni og stöðugri niðurstöðu í hverju skoti.
Hario Buono ketill
Hario Buono V60 ketill í uppáhaldi hjá mörgum. Grannur stúturinn veitir fulla stjórn á vatnsbununni og þannig getur þú stjórnað hraða og stefnu vatnsins sem er nauðsynlegt þegar hellt er upp á hæga uppáhellingu. Ryðfrítt stál.
Routin Pumpkin Spice 1 L syrup
BeeHouse teketill 580cc
Fallegur og vandaður teketill með stálsíu frá japanska framleiðandanum Zero Japan.
Not Neutral Kaffibolli 300 ml
Sérmerktur kaffibolli frá Not Neutral sem er framleiðandi postulíns sem er notað á öllum kaffihúsum Te & Kaffi.
Routin Karamellusíróp 250 ml
Hágæða karamellusíróp frá Routin. Tilvalið í kaffidrykki, te og kakó. Vegan.
Routin Súkkulaðisíróp 250 ml
Routin Heslihnetusíróp 250ml
Vegan. Tilvalið í kaffidrykki, te og kakó. Gildistími er 36 mánuðir.
Routin Vanillusíróp 250 ml
Hágæða vanillusíróp frá Routin. Tilvalið í kaffidrykki, te og kakó. Vegan.
Routin Irish Cream 250 ml syrup
Routin Súkkulaðisósa 500ml
Silkimjúk súkkulaðisósa frá Routin. Einstaklega góð í kalda drykki eins og íslatte og frappó.
Routin Jarðaberjasósa 500ml
Silkimjúk jarðaberjasósa frá Routin. Einstaklega góð í kalda drykki eins og íslatte og frappó.
Routin Karamellusósa 500ml
Silkimjúk karamellusósa sem hentar vel í alla möguleika drykki eða með ísnum. Við notum þessa sósu á kaffihúsunum okkar. 500ml
Routin Sírópspumpa
Pumpa fyrir 1 líters Routin sírópsflöskur.
Routin Vanilla 1l síróp
Routin Súkkulaði 1l síróp
Routin Karamellu 1l síróp
Routin karamellusíróp sykurlaust 1l
Routin Vanillusíróp sykurlaust 1l
Tesía kúla 4.5 cm
Tesía úr ryðfríu stáli. Passar í langflesta tebolla.
Tesía kúla 5 cm kúla
Tesía - Klemma 4.5 cm
Lítil tesía úr málmi með töng frá Chacult. Tilvalið fyrir einn bolla. Þvermál 4,5 cm.
Tesía Gyllt