Fara í efni

Burundi Rubirizi 250gr Baunir

Verð með VSK
2.895 kr.

Í Rubirizi héraði, norðurhluta Burundi, myndast kjöraðstæður með næringarríkum eldfjallajarðvegi og hæð yfir sjávarmáli til að rækta hágæða kaffi. Fjöldi smábænda rækta kaffiyrkið Red Bourbon sem er handtínt og síðar unnið á Bukeye þvottastöðinni. Á Bukeye eru stundaðar umhverfisvænar vinnsluaðferðir þar sem þekking og vandvirkni kaffibænda skilar sér í tærum og flóknum bolla.

Í bollanum má finna létta sýrni með sítrus- og eplatónum, sætleika sem minnir á hunang og rauða ávexti. Silkimjúk fylling með blómlegu og hreinu eftirbragði.

Framleiðandi: smábændur í Rubirizi Hill og Bukeye vinnslustöðin, Long Miles coffee.

Landsvæði: Kayanza, Burundi.

Hæð yfir sjávarmáli: 1750m.

Yrki: Red Bourbon.

Vinnsluaðferð: Þvegið og þurrkað á upphækkuðum beðum í 20 daga.

Verð með VSK
2.895 kr.