Sagan okkar frá 1984.

Te & Kaffi er fjölskyldufyrirtæki stofnað 1984 af hjónunum Sigmundi Dýrfjörð og Berglindi Guðbrandsdóttur sem komu innblásin heim frá búsetu árum í Svíþjóð með þann draum að opna verslun með sælkerkaffi og laufte. Þau opnuðu fyrst litla verslun á Barónsstíg með fersku sælkerakaffi og ótrúlegu magni af lauftei og bættu svo við kaffibar þegar þau fluttu síðar á Laugaveg.

Fyrstu 20 árin einbeittu þau sér að því að reka sérverslanir og kaffihús ásamt sölu á veitingamarkaði en með fjárfestinu í öflugri framleiðslutækjum árið 2004 var hægt að herja á innreið á matvörumarkaðinn af einvherri alvöru. Á 20 ára afmæli var farið í endurmörkun umbúða, sérverslana og kaffihúsa, útlit samræmt og nýtt myndmerki kynnt.

Sterk hefð, stöðug nýsköpun

Á síðasta áratug hefur vörumerkið þróast með sífelldum nýjungum og vöruþróun auk þess sem við rekum átta glæsileg kaffihús. Te & Kaffi er stærsta vörumerkið á neytendavörumarkaði og leggjum við mikið uppúr umhverfismálum en með sjálfbærni að leiðarljósi hafa stórar breytingar orðið í kaffibrennslunni og umbúðamálum.


Í dag starfa í kringum 100 manns hjá fyrirtækinu í ólíkum og skemmtilegum verkefnum. Til að daglegur rekstur fjölmargra kaffihúsa og sala á ólíka markaði geti gengið sem best fyrir sig þá þarf gott skipulag og frábært starfsfólk á allar starfsstöðvar. Framleiðsla á kaffi spilar veigamesta þáttinn í starfsemi fyrirtækisins. Með aukinni vitund neytenda um hágæðakaffi hafa sóknarfæri Te & Kaffi aukist til muna á síðustu árum.

Hjónin Berglind Guðbrandsdóttir og Sigmundur Dýrfjörð, stofnendur Te & Kaffi

Hjónin Berglind Guðbrandsdóttir og Sigmundur Dýrfjörð, stofnendur Te & Kaffi

Ástríða fyrir góðu kaffi

Strangt gæðaeftirlit á öllu vinnsluferli kaffibaunanna tryggja gæði sem kaffiunnendur á Íslandi geta treyst. Val á réttu hráefni skiptir höfuðmáli og er kaffið smakkað af okkar þaulvönu kaffi- sérfræðingum til þess að tryggja gæði og gott bragð. Með nýrri tækni við ristun aukast gæði kaffisins okkar enn frekar.