Kaffi? 
Okkar ánægja.

Kaffi? Okkar ánægja.

Frábært kaffi í vinnunni eykur vellíðan, hressir hugmyndavinnuna og bætir starfsandann. Það er tilhlökkun að eiga hágæðakaffi í vændum – þess vegna er gott bragð að velja Te & Kaffi. Færðu starfsfólkinu bestu stundir vinnudagsins og gestum ykkar framúrskarandi móttökur. Það er sáraeinfalt að vera í áskrift – og kaffivél fylgir! Kaffisérfræðingar Innnes sjá um að dreifa vörum Te & Kaffi til fyrirtækja og ráðleggja um magn sem hentar.

Hvað er vinnustaðurinn stór?

Lítill

Lítill

Less 10 Manns

Meðalstór

Meðalstór

10-50 Manns

Stór

Stór

More than 10-50 Manns

Kaffihylki

Kaffihylki

  • Te & Kaffi fjölskyldan hefur 40 ára reynslu af því að færa Íslendingum bestu stundir dagsins.

  • Við leggjum áherslu á gæði og bragð, heiðarleika og uppbyggjandi þjálfun starfsfólks.

  • Við bjóðum kaffi frá reyndum kaffibændum um víða veröld og ristum kaffið með lífrænt vottaðri aðferð.

  • Sjálfbærni er lykilgildi í rekstrinum. Viðmiðin eru vistvænar umbúðir, rekjanlegt kaffi og grænar lausnir í hvívetna.

Ábyrg starfsemi

Sjálfbærnistefna Te & Kaffi nær til allra þátta starfseminnar, frá ferðavenjum starfsfólks til losunarbókhalds.

Kaffiumbúðirnar okkar eru 100% niðurbrjótanlegar og þær má flokka með lífrænum úrgangi. Skemmtileg hringrás á sér þá stað þar sem umbúðirnar enda í gas- og jarðgerðarstöð og verða að metangasinu sem við notum til að rista kaffið. Kaffibrennsla Te & Kaffi er eina lífrænt vottaða kaffibrennsla landsins.

Við tökum þátt í alþjóðlegum verkefnum með áherslu á velferð ungs fólks, styrkjum uppbyggingu skóga í kaffiræktunarlöndum og fylgjum skýrri stefnu gegn barna- og nauðungarvinnu, sem nær einnig til erlendra birgja.

Gjafakort

Fyrirtæki í kaffiáskrift eiga kost á sérstökum gjafakortum  yrir starfsfólk, sem henta ýmist vegna fundahalda og ferða um bæinn, eða sem tækifærisgjöf. Hvert kort er ótímabundið og gildir á notalegum kaffihúsum Te & Kaffi.

Gjafakort