Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

Old Java - Hylki

Verð með VSK
795 kr.
Hágæða kaffi í lífrænum kaffihylkjum fyrir Nespresso vélar
 
Styrkleiki 9
 
Bragðeiginleikar

Old Java blandan okkar er dökkristuð og hefur súkkulaði og sírópskennda áferð og sykursætt bragð. Það hefur mikla fyllingu, milda jarðartóna og höfuga angan. Það er með mjög lága sýrni með örlitlu piparkenndu eftirbragði sem eykur á upplifunina.

Á nýlendutímum var þessi kaffitegund seld dýrum dómum. Blandan dregur nafn sitt af því að hrákaffið sem var látið standa í vöruskemmu í 2-3 ár og á þeim tíma tapaði það mestu af sýrninni og jók við sig sætleika og fyllingu. Þessi aðferð er þó ekki stunduð lengur en við erum ánægð með að geta boðið upp á sömu bragðeiginleika og í þessari sögufrægu blöndu þrátt fyrir að aðferðirnar hafi breyst.

Njóttu bollans með góðri samvisku

Allt okkar kaffi er ristað á umhverfisvænan hátt með metangasi sem verður til úr lífrænum úrgangi frá gas- og jarðgerðarstöð Sorpu (GAJU). Kaffiumbúðirnar okkar eru úr lífrænum efnum og flokkast með lífrænu sorpi sé þess kostur eða almennu þar sem þær brotna niður á sambærilegum tíma og margur annar lífrænn úrgangur. Um það bil 80% af öllu okkar kaffi er ræktað á sjálfbæran og rekjanlegan hátt.

Verð með VSK
795 kr.